EKKI AUMINGI

Eva Matta endurrammar umræðuna um endurhæfingu og kulnun. Af hverju er svona erfitt að hægja á, án þess að líða eins og aumingja? 

Episodes

May 5, 2026

1 hr 14 min

Fyrsti þáttur í fyrstu seríu! Þetta podcast er tilraun Evu til þess að endurramma orðræðuna um hvíld, endurhæfingu og allt sem fylgir. Hún fer yfir hvers vegna í ósköpunum henni datt í hug að henda í þetta podcast og að sjálfsögðu þurfum við að ræða þessa aumingjahræðslu okkar... 
TAKK FYRIR AÐ VERA MEÐ: LYFJA, NORDAID, SAN PELLEGRINO & BATI.APP <3 

May 5, 2026

1 hr 14 min

May 12, 2026

1 hr 30 min

Kæri hlustandi það er komið að fyrsta viðmælanda þessa ágæta hlaðvarps.. og fyrst ég er að vanda mig að halda taugakerfinu rólegu í endurhæfingunni þá var best að fá hann pabba minn bara með mér í fyrsta þátt. Hann er engum líkur, fagmaður í því að koma fólki í gegnum krefjandi tímabil, Matti Osvald gjöriðisvovel! 

May 12, 2026

1 hr 30 min

May 19, 2026

1 hr 20 min

Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir eða Hófí eins og við þekkjum hana mörg, er sjúkraþjálfari sem ég fór til í minni endurhæfingu, og það breytti öllu. Hófí starfar hjá Verkjalausnum og er önnur stofnenda Stoðkerfis- og heilsuskóla Hólmfríðar og Þórhöllu, ásamt allskonar öðrum áhugaverðum úrræðum fyrir fólk í leit af lausnum fyrir líkamann. Þetta er fagkona sem þú vilt hlusta á. 
Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, Bati.app og San Pellegrino - TAKK  

May 19, 2026

1 hr 20 min

May 26, 2026

1 hr 53 sec

Hvað einkenndi langlífustu konu heims? Skammar þú þig einhverntíman? Ertu að bíða eftir að einhver sjái þig? Hvað er temmilegt hitastig á baði? Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. 
Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, San Pellegrino og Bati.app - TAKK 

May 26, 2026

1 hr 53 sec

Jun 2, 2026

1 hr 14 min

Svava Brooks er er mögnuð kona, TRE® leiðbeinandi og ein af stofnendum samtakanna Blátt áfram. Hún hefur áratuga reynslu af því að styðja fólk á batavegi eftir áföll og erfiðleika. 
Ég er vægast sagt þakklát fyrir að hafa tekið þetta spjall við Svövu og þú verður eiginlega að heyra þetta. Í þættinum ræðum við meðal annars TRE® (Tension & Trauma Releasing Exercises), aðferð sem hjálpar líkamanum að losa um uppsafnaða spennu, streitu og áföll, og Svava deilir sinni innsýn í tengsl áfalla, taugakerfisins og bataferlisins, og hvernig hægt er að finna leiðina aftur til sín með mildi, öryggi og sjálfsást. 

Jun 2, 2026

1 hr 14 min

Jun 9, 2026

1 hr 16 min

Hvað hefur ástin með endurhæfingu að gera?
Meira en maður myndi halda.
Í þessum þætti sest ég niður með sálfræðingnum og rithöfundinum Guðbrandi Árna Ísberg, höfundi bókanna Skömmin, Í nándinni og nýju bókarinnar Í augum þínum verð ég til – um ástina. Guðbrandur hefur í áratugi unnið með fólki í leit að betri tengslum, meiri nánd og sterkari sjálfsvirðingu.
Við ræðum ástina, sambönd, skömm og það sem gerist þegar lífið tekur óvænta beygju. Hvernig hefur sjálfsvirðið áhrif á samböndin okkar? Af hverju er svona erfitt að taka á móti hjálp þegar við þurfum mest á henni að halda? Og hvað gerist í ástarsambandi þegar annar aðilinn neyðist til að hægja á sér, fara í endurhæfingu eða sleppa tökunum á þeirri útgáfu af sér sem hann þekkti áður?Þessi þáttur er í boði Lyfju, Nordaid sprey vítamínanna, Bati.app og San Pellegrino - TAKK 

Jun 9, 2026

1 hr 16 min

Jun 23, 2026

59 min

Ræðum aðeins bókina When the body says No eftir Gabor Maté, námskeið sem Virk sendi mig á þar sem ég stórgræddi mikilvæga innsýn í lífið, Kaleo á Þingvöllum og smá vanmat hjá skvís. 
Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK 

Jun 23, 2026

59 min

Jun 30, 2026

1 hr 4 min

Systurnar Hera og Thelma eru að stofna heilsusamfélagið Thera Studio með áherslu á kvenheilsu. JÁ TAKK. Þær eru meðal annars að flytja inn fyrsta meðgöngu- sjúkraþjálfunarbekk landsins sem allar mæður fyrr og síðar hafa beðið eftir. Við áttum virkilega gott spjall um kvenheilsu, mæður, mikilvægi þess að við mætum okkur á þeim stað sem við erum, og svo margt annað! 
Hér er Thera Studio á instagram og heimasíðan þeirra er therastudio.is
Þátturinn er í boði Nordaid, Lyfju, Bati.app og San Pellegrino - TAKK 

Jun 30, 2026

1 hr 4 min

Jul 7, 2026

58 min

Einn extra hrár hér á ferð... endurhæfingin gefur og endurhæfingin tekur (: 
Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK 

Jul 7, 2026

58 min

Jul 14, 2026

1 hr 15 min

Þegar lífið tekur óvænta u-beygju fylgir oft fjárhagslegt óöryggi.
Mörg upplifa skömm, ótta og vanmátt gagnvart eigin fjármálum og mér fannst tilvalið að fá Björn í þáttinn, vegna þess að hann talar um fjármálahlið lífsins á mannlegan og yfirvegaðan hátt. Hvernig getum við undirbúið okkur betur? Hvaða mistök eru algeng? Hvernig getum við rætt um peninga af meiri ró og minni skömm?
Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK 

Jul 14, 2026

1 hr 15 min

Copyright 2026 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125